föstudagur, 29. ágúst 2008

don't look any further

Einu sinni þegar ég var aðeins minni og ennþá í Kvennaskólanum fannst mér skemmtilegast í heimi að herma eftir fólki sem mér þótti fáránlegt eða fyndið. Ég var rétt í þessu að horfa á night fever á VH1 og sá þá gamalkunna söngkonu. Henni hermdi ég eftir í tíma og ótíma


Sem ég sit hérna ein í stofunni og söngla með heyri ég að ég hef þetta ennþá, ég hljóma alveg eins og þessi gella!

Spurning um að fara að brydda upp á þessu skemmtiatriði aftur það gerði alltaf mikla lukku í partýum!

5 ummæli:

solveig sagði...

ahaha er þetta ekki m-people gellan sem syngur? hún er nefmælt nema eiginlega hálsmælt eða kokmælt, mjög skrýtið. man sko alveg eftir þessum eftirhermum, en það slær náttla ekkert út the wock eða dry land

Nafnlaus sagði...

Svo eru Moe og Apu úr simpsons líka ó gleymanlegir

Nafnlaus sagði...

Bíddu bíddu hvað voru þetta eiginlega mörg partý þarna í menntaskólanum ?
mamma

Unknown sagði...

Vaaa, eg er alveg buin ad vera med tetta lag a heilanum i meir en viku, eg reyndar nae henni ekki alveg jafn vel og tu Tora, en eg reyni!

xxxx sagði...

inga við ættum að stofna svona eftirhermukór, er viss um að við gætum grætt fullt af péning. gætum raddað og eitthvað.